Mér fannst kominn tími til að blogga en svo veit ég ekki alveg hvar ég á að byrja en hef samt alveg frá nógu að segja.
Fyrstu helgina í október fór ég með ca 22 krökkum úr viðskiptafræðinni í vísindaferð til Köben. Þetta var snilldar ferð með snilldar fólki. Ég kynnist fullt af krökkum í þessari ferð, og ég held að þetta hafi verið mjög góður hópur sem náði mjög vel saman þó að við höfum ekki öll þekkst fyrir ferðina. Við fórum snemma á fimmtudagsmorgni til Köben, reyndar ekki eins snemma og við áttum að gera því auðvitað var seinkun hjá Iceland express. Þegar við vorum loksins komin á áfangastað var farið upp á hótel og skipt um föt á met tíma. Svo tókum við lest í fyrstu vísindaferð helgarinnar sem var hjá Landic property. Þar fenguð við að kynnast mjög spennandi fyrirtæki sem á fasteignir út um allt á norðurlöndunum. Auðvitað var nóg af bjór, samlokum og ávöxtum í boði. Mjög flott og skemmtileg vísindaferð. Eftir það var farið á Hard Rock café og happy hour notað í botn áður en klukkan varð 19.00 Þar var semsagt pantað nóg af bjór og kokteilum og hamborgurum og fleiru góðgæti. Þegar allir voru orðnir vel saddir og fullir var farið upp á hótel þar sem allir héldu áfram að hella í sig. Nokkrir voru svo hressir að fara út á djammið það kvöldið en flestir fóru nú bara að sofa rétt eftir miðnætti.
Á föstudagmorguinn fórum ég og Guðbjörg Erla vinkona mín til Malmö og versluðum smá í H&M og fleiri búðum. Svo fengum við okkur að borða og Sigga kom og hitti okkur í smá stund. Það var ekkert smá gaman að hitta hana
Svo tókum við lestina aftur til köben, skiptum aftur um föt á met tíma og fórum með hópnum til í Straum-burðarás. Þar tók maður á móti okkur sem hafði ekki haft neinn tíma til að undirbúa fyrirlestur því hann hafði verið í símanum allann daginn. Fréttir dagsins höfðu verið að allir íslensku bankarnir væru að fara á hausinn og allir á Íslandi ruku í bankana til að taka peniginnn sinn út. Við fengum samt mjög "skemmtilegan fyrirlestur" og margar fréttir, uppfrá því sköpuðust fjörugar umræður og svo var allt vínið sem til var í húsinu týnt fram og við látin drekka allt sem til var. Allir voru að sjálfsögðu mjög ánægðir með það
Næst var ferðinni heitið á ítalskan veitingastað sem ég man ekki alveg hvað heitir, en þar var allavega haldið áfram að drekka og borða. Því næst var stutt partý upp á hóteli og svo var haldið niður í bæ og djammað þar langt fram eftir nóttu.
Á laugardagmorguninn tók ég svo lest aftur til Malmö og loksins loksins hitti ég David, Siggu, Önnu Ló, Baltsar og Heimi Móses
Það var æðislegt að geta eytt deginum og kvöldinu með þeim. Guðrún systir Siggu var líka í heimsókn og við skemmtum okkur mjög vel í kósý heitum á laugardagskvöldið yfir nammi og dvd myndum. Ég gisti svo heima hjá mér í Malmö og eyddi líka sunnudeginum með fjölskyldunni. Ég hitti svo hópinn út á kastrup um kvöldið þegar við vorum að fara heim.
Helgin var mjög vel hepnuð að öllu leyti og vil ég þakka öllum fyrir ferðina.
Helgina eftir það fórum við stelpurnar í bústað og það var líka rosa skemmtilegt eins og alltaf þegar við í djúsanda hittumst

Við byrjuðum á því að gera okkur að fíflum með því að fara klæddar eins og Zorró í ríkið og bónus í Hveragerði til að hafa nógar veigar yfir helgina. Eitt er víst að það var nóg af kjúklinga vængjum á staðnum

hehe Svo var bara drukkið, dansað, sungið, spilað, farið í pottinn, göngutúr og margt fleira brallað.
Núna um helgina var svo reiðhallarball í Þorlákshöfn sem var mjög skemmtilegt. En guð hvað ég var þunn daginn eftir. Held bara að mér hafi aldrei liðið svona illa áður

Á laugardaginn fór ég með Örnu Hrönn, Guðrúnu og Hugborgu í sund. Þegar við komum heim bakaði Hugborg skonsur og vöfflur og það var sko heldur betur borðað yfir sig af sykri, ís og sírópi

Auðvitað var rosa gaman að koma á Selfoss og knúsa litlu sætu frænkur mínar. En næsta sunnudag verður litla Hjaltadóttir skírð. Get ekki beðið eftir að heyra hvað hún á að heita.....spennandi......
Svo ég tali nú ekki bara um djamm og ofát þá var ég í fyrsta prófinu mínu á miðvikudaginn en það var í rekstarhagfræði og svo var annað próf á föstudaginn í fjárhagsbókhaldi. Á miðvikudaginn er svo próf í stærðfræði. Þetta eru miðannarpróf sem koma bara til hækkunar á lokaeinkunn sem er mjög gott því maður hefur líka tækifæri til að sjá hvernig maður stendur í viðkomandi fagi. Ég er ekki búin að fá út úr fyrra prófinu en í fjárhagsbókhaldi fékk ég 7,6

bara ánægð með það því þetta mun hækka lokaeinkunina mína um 1.14 og það mundar sko um það. Núna er ég svo bara að læra fyrir næsta próf og bíð eftir að fá út úr hinu prófinu og vona að það hafi gengið eins vel
jæja segi þetta gott í bili. Ætla að halda áfram að reikna.
Kv Herdís